Jæja þá er komið að dagskrá kvöldsins.
Staður:
Brons á austurvelli (gamla Kaffibrennslan)
Tími:
21:00
Dagsetning:
15.03.2008 (næsti laugardagur)
Jæja við erum að tala um alsherjar Laugarvatnshitting og er öllum boðið sem voru á laugarvatni frá haustinu 2003 og fram á vor 2006

Eins og fyrr segir er mæting kl 21 og verður byrjað á tapas-snittum (ekki tveir með einn disk) og fordrykk (bjór) sem verður í boði eftir því sem byrgðir endast. Fyrstur kemur fyrstur fær....
Jæja þegar öllu formlega ruglinu er lokið og allir búnir að segja hvað það sé gaman að hittast,
búið að þakka okkur fyrir að hafa hóað öllum saman og ákveða að gera þetta árlega (sem gengur samt aldrei) þá verður bara alsherjar partý. Við erum búinir að fá fullt af mjög mjög góðum tilboðum á barnum, bæði
bjór og eitthvað
sterkt og svo er aldrei að vita nema fólk geti bragðað á ekki gjörsamlega morðdýrum
mojito!!!!! Svo fer fólk á trúnó og segir hvað það var gaman á laugarvatni og svo fara sumir að gráta og vonandi fara sumir að dansa saman fram á nótt og kannski færa leikinn eitthvert annað eftir djammið!!!
En nú er bara málið að fresta öllu sem átti að gera á laugardagskvöldið og fram til 14 á sunnudag og mæta á brons og hitta allt þetta frábæra lið sem var og er í skólanum. Talið við bekkarsystkini og gangið úr skugga um að þau vita af þessu og gerum okkur gott kvöld
Með bestu kveðju og tilhlökkun um að sjá sem allra flesta.
F.H Tarfanna
Atli Sveinn, Eyjólfur og Haraldur